Sigur Rós — Fjöll í austri fagurblá

Sigur Rós Fjöll í austri fagurblá

Текст песни

Fjöll í austri fagurblá

freista dalabarnsins.

Ungur fylgir æskuþrá

upp til jökulhjarnsins.

 

Sveimað heimahögum frá

hef ég vors á degi,

víða stíða þræddi þá

þunga hraunavegi.

 

Heiðin breiða hugumkær

hvetur viljann ofar.

Leiðin seiðir, fráum fær,

fögrum sýnum lofar.

 

Gangan sækist öruggt enn

urðarróti móti.

Einatt hlutu heiðamenn

höggvinn fót á grjóti.

 

Hver, sem ofar á að ná,

einskis metið getur

þótt í fangið fái sá

fjúk og hretið betur.

 

Anda heitum yndi nóg

unaðsreitir geyma.

Seinna leitar þráin þó

þinna sveita heima.

 

Клип «Fjöll í austri fagurblá»

Видеоролики хранятся и модерируются сервисом YouTube. Отказ от ответственности

Заказать перевод Прислать свой вариант перевода

Текст песни Sigur Rós Fjöll í austri fagurblá предоставлен в ознакомительных целях для личного развития.